~~lindarpíkurnar~~

--úr Lindahverfi í Kópavogi!!

02.04.2008 17:23:47 / Steffý

Guð minn alm......


Guð minn góður... það sem maður leggur á sig í tilraun til þess að reyna að vera fallegur...

Ég fór áðan í green peel.... Ég hef aldrei upplifað jafn mikinn sársauka á ævinni!!

Eins gott að þetta virki!!




» 3 hafa sagt sína skoðun

25.03.2008 14:19:41 / Sandra

hello

Jæja þá eru páskarnir búnir og sumarið er þá bara næst á dagskrá og verð ég að segja að ég get ekki beðið. Mér er búið að vera svo kalt í vetur og það væri fínt að fá smá yl í kroppinn :p
Annars er voða lítið að frétta af mér um páskana lá ég bara yfir súkkulaði og góðum mat. þess á milli skrapp ég í ræktina, þar sem ég er að reyna að grenna mig en það gengur ekki NEITT. Ég er búin að vera hjá einkaþjálfara núna í 2 mánuði næstum því og ég er bara búin að missa 4 kíló, sem mér finnst sko ekki gott miðað við það hvað ég er búin að hamast mikið á stigavélinni og hlaupabrettinu. Ég verð brjáluð ef ég fer ekki að grennast meira.
Svo er ég að spá í að lita á mér hárið dökk brún aðeins að breyta til þar sem að ég er búin að vera með ljósar strípur frá því í 6 eða 7 bekk í lindarskóla. Guð ég man ennþá eftir deginum sem ég lét setja í mig ljósa strípur Brynja og ég held íris héldu upp á afmælið sitt saman heima hjá Brynju. Og ég var geggjað ánægð með hárið á mér,fannst ég sko þvílík skvísa og það kvöld byrjaði ég með Aroni.. hahaha jesús minn....muniði eftir því stelpur. Hvað var maður að spá..
En muniði eftir Agnesi systur hans Nóra Rauða. Hún er 90 módel. Alla vegna hún er að kenna spinning í sporthúsinu. Mér finnst það eitthvað svo skrítið hún er svo ung eitthvað. Sé Auðbjörgu ekki fyrir mér kenna spinning :s
bless í bili 

 Stelpur, svona verð ég í sumar :) Sexý ??

» 5 hafa sagt sína skoðun

06.03.2008 10:18:54 / Sandra

Heitur

Það er eitthvað við þennan sem heillar mig.. sammála stelpur??? 

                    Gerard Butler, hann leikur í P.S i love you og 300.... þvílíkt heitur..






Kveðja Sandra

» 7 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 16:43:28 / Steffý

Atkvæðagreiðsla



    Ég vil bara fá að sjá hvort við stelpurnar hérna höfum sama smekk á strákum ;)

    Ég vil að þið gefið þessum gæja hérna fyrir neðan einkunn......

    Ég er samt búinn að panta hann og stendur það hérna svart á hvítu!!!


  

  
   


» 9 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 18:00:35 / Oddný Jóna

Halló systur:)

 

www.barnanet.is/prinsessadan

 

Loksins loksins!! I did it:)

 Við höfum ákveðið að vera með barnanet í staðin fyrir barnaland, enda ekkert nema leiðindi á þeirri síðu! :) (Svo var það líka of flókið;) hahaha

Hérna eru væntanlegar myndir:)

 

Kv. Oddný Jóna og Prinsessa Dan :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 07:48:51 / Steffý

Morgunblogg....

 
Það var í Dv um daginn, 24 janúar held ég einhver grein um 
það að myndir af 
börnum séu látnar 
inn á barnaklámsvefi.. Sem sagt myndir sem hafa verið 
látnar inn á netið..
 
Vitiði það að mér finnst það bara ekkert skrítið...
 
Systir mín sem er fædd '92 er með Myspacesíðu og þegar 
maður skoðar síðurnar
hjá stelpum sem hún þekkir er þetta meira né minna allt 
allsbert næstum með búbburnar
framan í myndavélina...
 
Ég fæ svo mikinn kjánahroll að sjá þetta...
 
Hlakka mig til þegar þær verða eldri og líta til baka... Ef það 
og gerist..
Er þetta ekki kallað klámkynslóðin? '89 og uppúr??
 
Ein gróf frá Finnlandi... Frétt af Vísi.is 
 
"Finnsk stúlka er grunuð um að hafa skipulagt morð á móður sinni með því að ráða menn til þess að drepa hana. Móðir stúlkunnar lifði árásina af.

Fimm manns, þar á meðal stúlkan sem er 19 ára, og tveir tvítugir menn, hafa verið handtekin og ákærð fyrir tilraun til morðs og fyrir að vera vitorðsmenn.

Samkvæmt upplýsingum lögreglu fóru þrír menn á heimili fórnarlambsins þann 16.janúar og sögðu móður stúlkunnar að þeir vildu ræða við hana um mál sem varðaði dóttur hennar


Eftir að konan hleypti þeim inn var hún lamin í hausinn með krossboga og ör en henni tókst að sleppa með því að læsa sig úti á svölum og hrópa á hjálp.

Árásarmennirnir voru fljótlega handteknir. Einn fannst með krossbogann en örin fannst á heimili móðurinnar.


Rannsóknarmenn fundu einnig skrifuð skilaboð frá stúlkunni þar sem hún býður fram peninga til þess að fá móður sína myrta."

Þetta hlýtur að vera geðsjúkdómur... Hverjum dettur það í hug að vilja drepa foreldra sína!


Hayden Paniettere, bandarísk leikkona sem þekktust er fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttaröðunum Heroes , fór á fund sendiherra Íslands í Washington, Alberts Jónssonar, í gær, í því skyni að mótmæla hvalveiðum Íslendinga.
 
Æjjj þeir eru ekki í útrýmingarhættu og þeir eru að éta allan 
þann fisk sem við þurfum á
að halda.... Aðeins að horfa á raunhæfu hliðarnar líka ekki 
bara það sjá Willy....
 
Hvað ætli hún viti eitthvað um þetta... Hún veit örugglega 
ekki einu sinni hvar Ísland er á 
landakorti, myndi klappa fyrir henni ef hún gæti sagt mér í 
hvaða heimsálfu...
 
Mér finnst frábært þegar stjörnurnar taka sig til og labba 
allsber til að mótmæla loðfeldum en
þegar það kemur að einhverju sem tengist þeim ekkert eiga 
þau bara að halda áfram að 
lakka á sér neglurnar og láta taka myndir af sér....
 
Mér finnst ekkert fallegt þegar verið er að drepa dýr.. En 
stundum er það nú bara þannig
að hlutir verða að gerast þótt maður vilji það ekki....
 Stofn fiskanna sem er í kvöldmat hjá 
flestöllum Íslendingum oft í viku minnkar rosalega... 
Hvalir éta ekkert smáááá mikið...
 
Já svo er bara einhver veira að herja á landann... Aldrei 
heyrt um hana og ég trúi því ekki
í sekúndu að þetta sé gamla góða gubbupestin... Hún heitir 
bara gubbupest ekki veira!!
 
Nóróveiran hefur verið talsvert í fréttum vestan hafs upp á síðkastið en veiran er bráðsmitandi og veldur uppköstum og niðurgangi.

„Þetta er bara gamla, góða gubbupestin,“ segir Guðrún Sigmundsdóttir, yfirlæknir á sóttvarnarsviði hjá landlæknisembættinu. „Hún gengur helst á veturna og er bráðsmitandi. Ég hef heyrt að hún herji svolítið á fólk þessa dagana.“

 

» 2 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 13:29:29 / Steffý

Hahaha

 

 

Hahahahaha!!
 
Sáuði Spaugstofuna??
 
Hahahahahaha!!
 
 
Það er bara alveg komið á hreint að það er einhver nöttari sestur í borgarstjórastólinn!!
 
Ég var að lesa DV um helgina, greinina um Ólaf...
 
Í fyrsta lagi forðast hann hurðarhúna.. Hann vill helst ekki taka í höndina á fólki
 (mjög sniðugt 
þá að gerast pólitíkus, þeir fá borgað fyrir það;) svo er hann með tvo ópalpakka á sér..
Einn fyrir
þá sem hann vill ekki taka í höndina á en svo er hinn bara fyrir hann...
 
Hann er nefninlega sýklahræddur.......!!
 
Honum fannst sko ekki fyndið þegar Spaugstofan gerði grín af honum.. Sagði þetta vera árás 
á
sig og fjölskyldu sína..
 
En haaaalló... Nú er maður þjóðþekktur, orðinn borgarstjóri...
 
Heldur hann í aaaalvöru að Spaugstofumenn séu að fara að sleppa því að gera grín
af sýklahræddum borgarstjóra... !!
 
Þetta er orðið svo fáránlegt allt saman... Fólk er bara að gera sig að fífli..
 
Í fréttunum í gær þá var viðtal við tvo eða þrjá borgarfulltrúa og það voru allir að segja
"Nei ég sagði það ekki, þetta er bara lygi...."
 
Ég er bara farin að halda það að það sé enginn innan veggja Ráðhússins sem stendur saman..
 
 
Það á bara einn maður að stjórna öllu batteríinu.. Þá verður þetta ekki svona mikil vitleysa..
 
Skárra að hafa einræðisherra en þessa gauka!!
                                                                                                                                                          
  

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.01.2008 04:39:17 / Steffý

Fréttir....

 

Það er margt að gerast í fréttum....

 

Byrjum á sorglegu fráfalli með þeim myndarlegustu mönnum Hollywood, Heath Ledger...

Nýjustu fréttirnar eru þær að hann fannst naaaaked... Sé ekki hvað það skiptir nokkru máli en það er víst það sem skiptir máli....

Fjölskylda hans segir að þetta hafi ekki verið sjálfsmorð heldur slys og ég trúi því alveg...

 

Aðrar sorglegar fréttir... Ég átti ekki til orð og ég er ekki frá því að eitt tár hafi brotið sér leið gegnum tárhvarminn!

Luxor strákabandið hefur lagt upp laupana...

Áhuga og metnaðarleysi er víst orsökin.. Persónulega held ég að sumir í þessu bandi hafi fengið mikilmennskubrjálæði og haldið sig meira en þeir væru...

 

GLEÐIFRÉTTIR...

Júdas hefur ákveðið að hætta sem borgarfulltrúi...

Að sjálfsögðu er verið að tala um Björn Inga... Ég held að þetta hafi verið það skynsamlegasta í stöðunni hjá honum en það er spurning um hvað við þurfum að draga af okkar peningum og borga honum í laun..

Ég vona að hann sé nú búinn að átta sig á því að það eru ekki mörg prósent af þjóðinni sem vill hafa hann pólitík og að hann snúi sér að gróðursetningu og listmálun.. Bara einhverju sem ég þarf ekki að borga fyrir!!

Það þarf alvarlega að fara að ákveða það hver á að vera borgarstjóri en ekki að vera að rífast um það eins og leikskólabörn um það hver fær næst að lita með bláa litnum!

Ég held að Dagur sé bara mjög góður í þetta starf... Hann gæti gert eitthvað gott fyrir borgina án þess að ég sé að fara að veðja lífi mínu upp á það..

Hef lært það fyrir löngu að maður eigi aldrei að treysta stjórnmálamönnum ekki frekar en giftum mönnum í herbergi með allsberum kellingum ;)

 

Enn er verið að taka mann í rassgatið fjárhagslega og var N1 að hækka verðið á bensíni og díselolíu!

Ég mæli með því að við leggjum bílunum og nota það farartæki sem guð gaf okkur eða strætó.. Að við skyldum gera þessum gæjum það til geðs að kaupa þetta!

 

Ég hélt að ég yrði ekki eldri þegar ég horfði á nýjasta Kompásþáttinn áðan..

HANDRUKKARAR???

Þetta eru 17-18 ára gamlir strákormar...

Það voru lögreglumenn og sérsveitargæjar sem földu sig í runnum með svartar rendur á kinnunum eða eitthvað þarna og létu sko til skarar skríða...

Leiðist þeim eitthvað eða??

"Við setjum go á þetta, go go!!"

Ég fékk gæsahúð á rassinn og grænar og fjólubláar þegar ég heyrði þetta..

Svo var þessi maður sem er pabbi stráksins sem skuldaði öskrandi á strákinn sem vildi fá peninginn sinn aftur og var að spurja hann spurninga en leyfði honum aldrei að svara og æsti hann upp... Mér fannst allavega ótrúlegt hvað strákurinn gat haldið aftur að sér...

Svo segir maðurinn "og hvað? Hað ætlaru að gera ha?

Strákurinn " Ég ætla sko að .....

Maðurinn " já hvað ætlaru að gera?" 

Af hverju sagði hann ekki bara "segðu það bara hérna í míkrófóninn..."

Asnalegt.. Svo er greyið strákurinn bara dúndraður niður af einhverjum sveittum öryggisverði sem langar að vera lögga og handtekinn...

Greyið strákurinn en guð hvað ég hló... Ég hef ekki séð það asnalegra..

Þeir meira að segja voru með fund áður en til handtökunnar kom og kortlögðu staðinn!!

það eru svona fjórar götur í Vogunum....

Merkilegast fannst mér þegar einhverjar húsmæður voru að óttast um öryggi barnanna sinna... Jú jú allt í lagi með það en hvað haldi þið að handrukkarar fari að gera við lítil börn á róló??  

Ef maður fær lánaðann pening þá maður að sjálfsögðu að borga hann til baka!!

Þannig að ég vorkenni þessu liði ekki neitt......

Ég vorkenni hins vegar fjölskyldum aulanna sem geta ekki borgað því oftar en einu sinni hefur það gerst að þeim sé hótað auðvitað er það mjög ósanngjarnt...

 Æj mér leiðist í vinnunni og ég er orðin þreytt.... Ákvað að bloga smá því það er svo mikið í fréttum.... :)

 

Ég mæli með að þið farið inn á visi.is og horfið á síðasta Kompás þátt :) 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 09:40:02 / Sandra

Heath Ledger látinn

Ástralski leikarinn Heath Ledger fannst látinn í íbúð í Sohohverfi á Manhattan í New York í dag. Ledger var 28 ára gamall

 Kona sem starfaði við þrif í íbúðinni kom að leikaranum og var hann úrskurðaður látinn eftir að björgunarmenn komu á staðinn. Fréttastofan AP hefur eftir lögreglu að andlát Ledger tengist hugsanlega lyfjanotkun en tölfur munu hafa fundist við líkið. Að sögn blaðsins New York Times á leikkonan Mary-Kate Olsen íbúðina sem Ledger fannst í.

vá ég trúi ekki að hann sé dáinn, hann er svo hot.. Muniði hann lék í 10 thing i hate about you..og myndinni þarna með Mel Gibson.. æ mér finnst þetta geggjað leiðinlegt.

Ledger kynntist eiginkonu sinni, leikkonunni Michelle Williams árið 2005 við tökur á myndinni Brokeback Mountain. Þau eignuðust dótturina Matildu, en skildu á síðasta ári.

 Megi hann hvíla í friði...

Kveðja Sandra

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 17:11:08 / Steffý

Ég hélt ég yrði ekki eldri!!

 

 

Skoðið þetta myndband....

Ég fékk tremma.. Kannski er ég ennþá full eða eitthvað en ég hélt ég myndi kafna.....

http://www.kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=0&ba=leita&leit=Achmed&id=5117


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 18:41:34 / Steffý

Hættu nú alveg!

 

 

Maður þarf aðeins að vanda mál sitt þegar maður skrifar á 

veraldarvefinn en 

hvað þarf meira að gerast með þessa útlendinga??

 

Lögreglumennirnir sem voru lamdir um daginn af einhverjum 

Litháenum, af hverju

eru þeir ekki sendir heim???

 

Heimildir Vísis herma að hluti árásarmannana, sem allir

koma frá Litháen, séu þrautþjálfaðir í bardagalistum og að minnsta kosti einn þeirra státi af verðlaunum í sparkboxi, eða „Kick-Boxing" frá heimalandi sínu.

 

Mjög frábært og gott að heyra að þrautþjálfaðir kick boxing 

Pólverji sé á 

sveimi í höfuðborginnni...

 

En auðvitað er ekkert gert fyrr en það er ráðist á 

lögregluna.... 

Takiði nú hausinn úr rassgatinu á ykkur og gerið eitthvað.... 


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 14:19:01 / Sandra

Litla Dúllan mín

Myndir af litlu dúllunni minni honum Oliver...

 Leika sér með snuðið sitt


Að naga sokk

 

  ég og litla krúsídúllan mín...

Endilega kíkjið á heimasíðuna hans. www.dyraland.is - heimasíður dýra og oliver..

Annars bara allt gott að frétt, held að ég sé að verða veik.. En annað veit enhver um hana Helgu?? ég meina er hún á landinu eða? hún svarar mér ekki, er búin að reyna mikið að ná í hana, hef sko ekki séð stelpuna í svona 4 mánuði ??

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 11:00:01 / Sandra

Bonjour !!!

Bonjour

Sælar elsku pjöllunar mínar. Gleðilegt nýtt ár og takk æðislega fyrir það gamla, vonandi verða stundir okkar saman fleiri á þessu ári.

Eins og þið vitið þá var ég úti í parís yfir áramótin og kom heim á föstudaginn. Var í eina viku og það var æðilegt. Ég er orðin alveg bullandi ástfangin af borginni án djóks. Ég ætla að segja ykkur svona smá frá ferðinni. Við sem sagt fórum 28. des klukkan 8 um morguninn þannig við þurftum að vakna klukkan 5, og eins og mér einni er lagið sváfum við aðeins yfir okkur.  Brunuðum út á völl sár svöng og ógeðslega þreytt og mygluð. En við náðum nú samt vélinni eftir 2 útköll frá mjög pirruðum manni sem er að vinna þarna á flugstöðinni. En þó svo að ferðin hafi byrjað mjög óheppilega var hún mjög skemmtileg. Við vorum rosalega miklir túristar þarna úti þið vitið svona með kortið af paris opið á meðan maður er að labbar og tekur myndir af öllu, eða ég var þannig jói labbaði alveg 2 metrum frá mér, hefur sennilega eitthvað skammast sín fyrir mig. :/

En á gamlárskövld fórum við út að borða á mjög flottum veitingastað á Cham Elysée sem er gata og liggur að Sigurboganum. Á Cham Elysée voru á miðnætti um 500.000 manns og brutust út smá ólæti. Það  voru einhverji fullir unglingar með flugelda og voru að sprengja í mannfjöldanum og brjóta flöskur og svona bara fullir vitleysingar þannig löggan mætti á svæðið með skjöld og táragas og var bara í action. Þannig við fengum bara dinner og show á gamlárskvöld. Var rosalega fegin að vera inná veitingastaðnum og þorði eiginlega ekki út. En það var samt ekkert þannig að gerast á gamlárs þarna í París , engin flugeldasýning eða neitt svoleiðis. Það var neflilega bannað bara rétt fyrir áramót allir flugeldar. En kvöldið var samt mjög fínt við fórum í 9 rétta mat á þessum veitingastað og ég geri það aldrei aftur. ég var alveg að springa, þannig að eftir matin fórum við bara heim á hótelið að melta. haha

Svo nátturulega eins og í öllum ferðum var aðeins verslan og tóks mér að missa mig í HM. Vá ég elska þessa búð, skil ekki afhverju hún er ekki hérna á íslandi, algjör synd, þeir myndu græða feitt, því allar stelpur hérna á íslandi elska þessa búð.
Svo fórum við líka í effelturninn og upp í sigurbogan, í notredam kirkjuna og alveg full. ´

vá hvað var gaman, mæli með því að allir fari einhverntíman til parísar..

Verðum svo að hafa aftur hitting fljótlega, þá get ég sýnt ykkur myndir úr ferðinni, ég tók alveg 200 myndir.

Au revoir

kveðja Sandra


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.01.2008 15:53:45 / Steffý

Júúúúúúúú!!

 

 

Rakst á forvitnilega frétt nú rétt í þessu á mbl...

 http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/01/05/polverjar_their_loghlydnustu/

 

Hver skrifaði þessa frétt?? Pólverji eða?

Það þýðir ekkert að margfalda og deila með hinu og þessu!!

 

Það sér það hver blindur maður að eftir að Pólverjar fóru að flykkjast hingað í massavís hafa 

stelpum verið nauðgað í bænum, dregnar inn í húsasund og þeim nauðgað og í hverri einustu 

frétt sem kemur um slík mál er maðurinn útlendingur.. Pólverji eða Litháeni..

 

Auðvitað er þeim skítsama ef þeir brjóta af sér á Íslandi.. Þeir þekkjast ekki aftur og þurfa 

ekki að hafa áhyggjur af því að nást.. 

 

Það væri líka ágætt ef tollarar landsins væru líka að athuga það hvort mennirnir sem koma

hingað að vinna séu nokkuð dæmdir morðingjar og glæpamenn... Slaka aðeins á í að góma 

fólk með þrjár e-pillur í vasanum og snúa sér að því að moka ekki hingað inn allskonar

vitleysingum...

 

Mér finnst ekkert sjálfsagðara en að fólk komi hingað allstaðar að og vinni hérna og allt 

svoleiðis... Þekki þrjár manneskjur frá A-Evrópu og þau eru æðisleg!

 

Ég veit alveg að fólk segir já ég meina það er ekki eins og Íslendingar séu eitthvað skárri..

Það er bara allt annað... Við eigum líka bara að vera að hugsa um okkar vitleysinga, og

hjálpa þeim til manns eða inn á geðdeild en ekki að vera að yfirfylla fangelsin af einhverjum 

erlendum verkamönnum sem geta ekki hagað sér... 

Ef þú ert með hreina sakaskrá, þið vitið ekki morðingi, nauðgari eða barnaníðingur og slíkt 

er í góðu lagi að koma og vinna og búa með fjölskyldunni þinni en um leið og þú brýtur af 

þér þá ferðu bara heim.... Er það voðalega ósanngjarnt??

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.01.2008 20:12:38 / Steffý

Byrjun árs...

 
 
 
 
 
Árið hefur byrjað alveg hræðilega..
 
Rosalega er þetta sorglegt með strákinn sem fannst dáinn.. Mér er alveg
illt í hjartanu ég finn svo til með aðstandendum hans... 
 
Ég sendi innilegar samúðarkveðjur til ykkar..
 
 
Ég skil samt ekki eitt.....
 
Það var farið að leita rosalega fljótt að honum, björgunar-sveit að vaða,
 hundar, kafarar, þyrla....
Svo núna var ég að lesa á Vísi að stelpa er búin að vera 
týnd síðan 2 janúar og það er bara lýst
eftir henni......
 
Telst þetta til öðruvísi aðstæðna? Hefur þessi stelpa kannski 
látið sig hverfa áður eða eitthvað..
 
 
Á fyrstu 4 dögum ársins er ég bara búin að heyra slæmar fréttir einhvern veginn.....
Ekkert sem tengist með beint.. En fólki í kringum mig og 
svo aðra þekki ég ekkert en maður samt
tekur þetta inn á sig.. það er svo erfitt að heyra eitthvað 
svona þó maður þekki ekki til þess...
 
Góðu fréttirnar eru þær að það er prinsessa á leiðinni og 
svo er víst annað barn líka á leiðinni en kynið
hefur ekki verið staðfest.. :D 
 

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 29
Dagsetning
23. febrúar 2012
Klukkan
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Leitarbox

...Djammið...
Myndir- Oddný Jóna